ZZZZZZzzzzzz

Jæja þá er helgin búin og vinnuvikan tekin við. Það var rosa fín matarveisla fyrir starfsmenn Miðlunar á Laugardagskvöldið í tilefni af flutningunum og svo smá tjútt á gellunum á eftir......nema mér....ég fór að vinna á Vélsmiðjunni. Það var nú samt bara mjög gaman....enda finnst mér mjög gaman að vinna á barWink. Eða svona yfirleitt Tounge. En þreytan í gær....vááááá...Mér leið eins og ég hafi orðið fyrir valtaraSleepingFrown.  Svo þessi sunnudagur fór í alveg meiriháttar leti og smá kríur við og við...það var mjög gott. Og ég er ekki frá því að ég sé ennþá soltið þreytt...eða aðallega sybbin. En kannski er það bara af of miklum svefn í þetta skiptið. Never know.

En hvað er málið með Jón Óttar, Herbalife Godfather. Nú er haldið fram að tengls séu milli herbalife og lifrarbólgu. Af hverju getur hann ekki tekið því eins og maður og viðurkennt að ekkert er fullkomið. Ef Herbalife á að vera svona rosalega gott eins og hann heldur fram og drykkir og töflur geta komið í staðinn fyrir mat af hverju er þá ekki útbúnar svoleiðis töflur og drykkir fyrir fólkið sem er að svelta í heiminum. Ef forðatöflur eru virkilega svona góðar, hvað væri þá hægt að bjarga mörgum börnum úr svelti á hverjum einasta degi. Það er sorglegt að hugsa til þess að á annarri eða þriðju hverri sekúndu er barn að deyja úr hungri á meðan við vesturlandsbúar erum að deyja úr offitu og sjúkdómum tengt ofáti, eða þá að fólk er á Herbalife. Kannski er bara lifrarbólgutíminn komin....rétt eins og uppskerutímabilin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

köfunarkvittun á lestri.....

Ólafur fannberg, 15.1.2007 kl. 13:29

2 identicon

stundum er bara svo gott að hvíla sig

Reynir Már Sigurvinsson (IP-tala skráð) 16.1.2007 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hexia de trix

Höfundur

Erla Skarphéðinsdóttir
Erla Skarphéðinsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Vinirnir

219 dagar til jóla

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 39147

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband