10.5.2007 | 16:21
Hérna fáið þið gömul og góð húsráð
- Hvað skal gera við geitungastungu: Ef þú ert stungin(n) af geitungi, þá er gott að setja sykurmola eða sykur yfir stunguna og líma niður með plástri.
- Að gera við regnföt. Ef þú þarft sð gera við regnföt sem farið hafa í sundur í "límingunni" þá er gott ráð að leggja sárið saman og setja álpappír beggja megin við það og svo strauja rólega yfir með straujárni.
- Tyggjóklessur úr fötum: Þú skellir flíkinni inn í frysti og síðan getur þú mulið tyggjóið úr.
- Tyggjóklessur í hár eða á húð: Sæktu smjörlíki, makaðu því vel á staðinn þar sem tyggjóið er fast og voila: mikið auðveldara að ná því úr. Mæli samt með að þvo hárið líka eftir slíka meðferð.
- Vaxblettur úr efni nærð þér í dagblað, leggur yfir blettinn og straujar svo yfir. Þá bráðnar vaxið og sogast upp í dagblaðið.
- Ná kaffiblettum úr kaffibollum Maður smellir bollunum einfaldlega í klórvatn og leyfir þeim að liggja yfir nótt. Þetta kölluðum við að "klóra" bolla. Síðan þvær maður þá bara eins og venjulega og þeir glansa að innan.
- Límblettir af gleri : gott ráð að fá sér sítrónudropa (kökudropa), hella þeim í blauta tusku og nudda vel yfir.
- Blettir á parketti er annað sem er frekar hvimleitt, en stundum virkar að taka blauta tusku og hella ediki í hana og strjúka yfir blettina.
- þýða hakk án þess að þurfi að taka það úr frysti með sólahrings fyrirvara er gott að setja hakkið í nýjann, hreinan poka og setja hnút efst á pokann. Lofttæma og fletja hakkið út svo það svipi til pizzu. Svo er þetta fryst eins og gert væri með hakk í bakka. Ef þetta er gert tekur ekki nema örskamma stund fyrir hakkið að þyðna svo ekki þarf að ákveða með miklum fyrirvara ef hakk skal vera í matinn.
- skera oststykki sem er orðið lítið er gott að taka smjörpappírs lengju og þræða í gegnum gat ostaskerans. Þá gengur mun betur að skera ostinn. Einnig er gott að þrífa ekki ostaskerann eftir hverja notkun því þá festist osturinn ekki við skerann.
- Losna við Vonda lykt úr ísskáp: Látið 2-3 tsk af matarsóda standa í opnu íláti í ískáp og þið losnið við alla lykt úr honum. EÐA Strjúka innan úr ískápnum með ediki til að losna við vonda lykt.
- Skera sveppi í jafnar sneiðar Til að skera sveppi í jafnar sneiðar er best að skella þeim í eggjaskerann.
- Til að losna við fitu sem sest ofan á eldhússkápa: Setja plastfilmu ofan á eldhússkápana. Þá sest fitan og rykið á plastið ekki skápa og ekkert mál að þrífa.
- Hvernig lætirðu tengdó halda að þú hafir bakað en ekki keypt köku: Annað ráð í sama blaði var að bræða smjörlíki á pönnu og strá svo kanel yfir. Þá kæmi lykt af nýbökuðu í allt húsið og þú gætir svo borið fram búðarkeyptu kökurnar þínar og allir héldu að þetta væri nýbakað!!!!
- Hvernig heldurðu baðherbisflísum glansandi: Bílabón á flísarnar á baðinu, halda glansanum í ár.
- Til að ná grasgrænku úr fötum, hellið nýmjólk í blettinn og svo uppþottarlegi og nuddið saman.
- Hvítir sokkar verða alveg skjannahvítir ef þeir eru soðnir í vatni með nokkrum sítrónusneiðum. Sítrónan er náttúrulegt bleikiefni.
- Til að afrafmagna Mýkingarefni: Er afrafmagnandi og stórsniðugt til þess að m.a strjúka af rimlagardínum og rafmagnstækjum! Blandið mýkingarefninu við vatn og vindið tusku uppúr því.
- Auðvelt ráð til að þrífa rimlagardínur: Ef þú þrífur rimlagardínur í baðkerinu, leystu þá upp 1 uppþvottarvélarkubb í vatnið og allt rennur af.
- Barnið pissar undir Þegar slys verður og barn vætir rúmið sitt er gott að strá kartöflumjöli á blettinn og láta þorna. Kartöflumjölið drekkur svo þvagið í sig. Þegar bletturinn er alveg orðinn þurr þá er mjölið ryksugað upp og enginn blettur verður eftir í dýnunni.
- Til að ná litum af vegg: tannkrem og naglabursti. Gott er að vera í gúmmí hönskum. WD-40 hefur líka virkað vel.
- Hvernig færðu leðurskó fína án skóáburðs Pússa leður skó með bananahýðinu, innra laginu, verða mjög fínir.
- Ef börnin eru að perla og perlurnar fara út um allt þá er bara að skella nælonsokk á ryksuguna og sjúga perlurnar upp, taka sokkin og tæma í perluboxið.
- Ef þú þarft að skipta einum tertubotni í tvennt, þá er best að gera það með tvinna. Þú byrjar á því að skera fyrir hringinn í kring og leggur síðan tvinnaspottann í skurðinn, heldur svo í báða endana á spottanum og dregur svo tvinnann í gegnum botninn.
- Ef þú ert að bera fram ísmola í skál, þá er mjög sniðugt að hvolfa litlum disk eða undirskál í skálina sem þú setur ísmolana í. Þá bráðna klakarnir ekki eins fljótt, og vatnið sem lekur af klökunum fer undir litla diskinn og klakarnir liggja ekki í vatninu.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Hexia de trix
Vinirnir
- Kitta skvísa
- Arnar minn hólm
-
Alda Heim.
Alda kalda -
Didda mín
Minningarsíða Sesars -
Jóhanna Ey.
Fóa feykirófa -
Sunna Hólm
Sunnulingur
252 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sniðugt, takk fyrir þetta
Kolla, 17.5.2007 kl. 21:09
Ertu ekki að drepast í hendinni ??
þristurinn (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 09:06
Ég hef heyrt að svona OFURBLOGGARAR hafa stundum getað fundið lækningu meina sinna, en alls ekki alltaf..... Við getum verið að tala um sinaskeiðabólgu, tennisolnboga,vefjagigt, tognun á verstu stöðum og ýmislegt annað . Farðu í tékk. En ef ekkert finnst að sestu þá niður og BLOGGAÐU..
þristurinn (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 09:11
altíkeiinu!! það er bara þessi taktíkin. ég reyndi að koma þér til bjargar. þú ert GLÖTUÐ
þristurinn (IP-tala skráð) 1.6.2007 kl. 15:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.